Áttu áttu?

Mí mí mí!

06.09.2007 13:19:14 / kurl

...köttur klukka hreindýr svín og endur....

:PDu2U_AXlz3uQM:http://i135.photobucket.com/albums/q134/pamlopez/sick.jpg" alt="" width="188" height="163" />

 

Nenni ekki að vera til núna í augnablikinu... beinverkir, hor og hósti ekki beint skemmtilegt!! og hvað er þá skemmtilegra en að skrifa nýja færslu hérna þegar maður er búinn að skoða allt skemmtilegt og ekki skemmtilegt á netinu?!!

Næst á dagskrá er svo að skutlast heim á Hú. og fagna 50 ára afmælinu með pabba og öllum hinum, vona bara að horinn verður hættur að leka fyrir ferðina...

Nýja íbúðin er alveg að taka á sig ásættanlega mynd, IKEA búið að safna fyrir tveimur árshátíðum fyrir alla peningana sem við erum búnar að leka í þá, Jóhanna stendur sig svona líka glimrandi i að setja saman hillur og skápa - ég hinsvegar læt þetta alveg eiga sig!!

Odododd nú er nýji uppáhalds þátturinn minn í sjónvarpinu, spænsk sápuópera - hrikalega dramatísk, full af angistarfullum ópum og tárum! Bara spennandi!! Skil rosalega fátt en það gerir þetta bara ennþá skemmtilegra!
Nei reyndar eru þetta alveg hrikalega vondir þættir, allar konurnar ljóshærðar með sílíkon brjóst og þó svo þetta sé á spænsku er þetta alveg hræðilega illa leikið úff!!

 

Jæja ég veit ekki alveg hvort einhver nennir að lesa þetta... eeeen ætla að halda áfram að snýta mér!

Verið sæl!


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 01:21:25 / kurl

Hvað er að frétta?

Já kannski kominn tími á blogg...

Ég er útskrifuð, var að eignast bíl, var að kaupa mér sófa, er að fara á Ólavsvöku í Færeyjum, er á leiðinni heim á hú. og er bara að njóta þess að vera til! :)

Nenni engri langri færslu... vildi bara láta vita að ég væri á lífi!

www.myspace.com/elinasbjarnar

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 12:27:35 / kurl

Löööng og erfið fæðing!!

Jæja þá er það komið úr mínum höndum hvort ég nái að útskrifast eða ekki... var að klára síðasta prófið áðan!!
Fáránlegt samt hvernig þetta er búið að ganga fyrir sig!! Algjör hneysa!! Ég er búin að þurfa að hringsnúast kringum sjálfa mig fyrir þessa 3 kennara sem eru að reyna að skipuleggja þetta, eini gallinn er sá að þær tala ekkert saman innbyrðis, eru bara allar að plana hver í sínu horni! Alveg út í hött!!

Klippingin er allavega pöntuð, kjóllinn kominn úr hreinsun, kakan í pöntun, partýið planað, allir á leið hingað um helgina og húfan að detta í hús. Ég ætla rétt að vona að ég þurfi ekki að kansela þessu!! Það væri líka frekar fúlt að þurfa að taka eina önn í viðbót bara fyrir eina einingu!! Kjaftæði og ég læt ekki bjóða mér það!!! Fussumsvei!

Ég er bara farin að hlakka til! Er samt alltaf að dreyma martröð þar sem ég dett á leið uppá svið í útskriftarathöfninni! Hræðilegt alveg hreint!!

En við Jozy erum að beila á stóóóra partýinu sem átti að vera um næstu helgi aðallega vegna þess að bærinn á víst að loka klukkan 3 á laugardaginn! Er það ekki?!!
Verður bara smá hittingur hér heima í staðinn, fyrir vel valið og alið fólk! Þið fáið að vita það fljótlega!! :)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 19:27:06 / kurl

Taktu eftir þú óprúttna manneskja!

Huhumm!

Þú sem varst svo óforskömmuð/ skammaður að gera svo illskeittann hlut að ræna fallega bleika motorola símanum mínum, með öllum fallegu myndunum af fallegu vinum mínum og fjölskyldu og frábæru hringitónunum með Bubba og Hjálmum. Vilt þú ekki líta við í kaffi og meððí og líta á allskonar plögg og pappíra um símann, það er nefnilega heppilegra fyrir þig að eiga kassann af símanum, svo getur þú líka kippt með þér hleðslutækinu, síminn dugar nú skammt án þess!!
Svo þætti mér bara svo ljúft og hjartahlýandi að fá að halda á honum, bara einu sinni enn!
Mér þætti líka vænt um að löðrunga þig létt á annan vangann, vegna þess að svona bara gerir maður ekki!!!!

 Og svo mátt þú bara skammast þín!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 22:49:38 / kurl

Lóan er komin!!

Það var haglél sem tók við blessuðum vorboðanum í morgun, þvílík skömm og hneysa!! Á ekki til orð yfir þessum dónaskap í Hr. Veðurguði! Elsku litli Lóan mín bara í öllu sínu sakleysi að gogga í e-ð gómsætt gúmelaði (að henni fanst alla vega) niðrí í fjöru og þar bara skellur á með þessu líka hagléli!! Hún hefur líklega hugsað; fjandinn sjálfur, ég vissi að það var e-ð sem ég þoldi ekki við þetta sker, nenni samt ekki aftur heim... jæja bara eitt sumar enn!! Þessi elska! :)

 

Lína litla!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 01:21:23 / kurl

Á ég að frelsa þig? Neee nei takk!

Þessa viku er svokölluð Jesúvika í MH! Ég er að klára þriðja og síðasta veturinn minn og ekki hafði ég hugmynd um að þetta væri til!!
Fullt af krökkum sem eru örugglega í krossinum eða e-ð að deila boðskap og nemendur á harðahlaupum undan fólki sem vill endilega frelsa það!! Nei ég segi bara svona... Þau voru alveg temmilega á hlédrægunótunum þessar elskur! :)
Finnst þetta bara doltið fyndið, Jésúvika jahérna hér alltaf lærir maður e-ð nýtt!

En það var ekki fyrr en mér var sagt frá bænastundunum að dauðu lýsnar steyptu sér af höfðinu á mér!! Já góðir hálsar það hefur víst tíðkast núna í dágóðann tíma að hafa bænastund alltaf í hádeginu á fimmtudögum  í stofu 43!! Jé dúdda! Ekki hafði ég hugmynd um þetta! Og ég búin að vera þetta lengi í skólanum.... er ég svona eftirtektarlaus?

Ég hef ekkert á móti fólki sem trúir statt og stöðugt á guð en allt sem fer út í öfgar er óþolandi!

Frekar vil ég fara út og djamma af mér rassinn heldur en að sitja heima og biðja!
Og hananú!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 21:10:33 / kurl

Emil kraftaverka fiskur!

 

Emil syndir eins og hvalur um búrið!!
Ætli hann hafi ekki bara verið með smá skammdegisþunglyndi greyið...

Allt gott að frétta núna! :) Allir í góðu gamni og svoleiðis!

Helvítis skíta veður samt!! Og ég sem hljóp um götur borgarinnar á bolnum einum klæða (nei kannski ekki alveg) og kallaði á fólk sem átti leið hjá mér: Góðann og blessaðann fyrsta vordag!! Kannski aðeins of snemma í því....
Rok og snjókoma varð fyrir valinu hjá veðurguðunum í dag. Ekki beint spennandi skal ég segja ykkur! En það er allavega rétt átt, get hlustað eðlilega á það sem er að gerast í sjónvarpinu og er ekki að bilast á skemmtilegu þremenningunum uppi á þaki!

Jú gamli kallinn í ruggustólnum er mættur!! Fjandinn hafi það!!

Lifið heil, ég ætla að reyna það líka! :)

Ble


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 11:35:36 / kurl

Hvað er að gerast? Er allt að verða vitlaust?

 

Ég bíð og bíð alveg við það að hlaupa héðan út!! Það er klikkað veður, ekki einsog fyrir norðan samt, en það er alveg hífandi rok og það er án gríns eins og þakið sé að fara af þessum fjögurra hæða kofa!!

Núna er Elínarátt: vindurinn hvín í svölunum og glugganum mínum svo að ég get ekki sofið!

Í síðustu viku var Jóhönnu átt, sem er miklu verri: Vindurinn stendur beint uppá gluggann hennar og svo hvín líka í þakinu og nauðgarinn, fórnarlambið og gamli kallinn í ruggustólnum eru öll uppá þaki að leika sér saman!! Sem endar með því að Jóhanna gefst upp og færir sig í gestaherbergi nr. 1

O. ó... ég held að svalahurðin sé að fara að opnast... Við getum nebbla ekki lokað henni alveg og svo er hún stundum bara opin þegar við vöknum eftir geggjað veður!!

Fjandinn þarna fýkur hún upp!!

Það er bara fullt starf að vera hérna í svona veðri!!

Hvar er vorið blíða??


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 00:13:18 / kurl

Spriklingur!

Ég veit ég veit ég er lélegasti bloggari ársins og allt það!!
En í tilefni dagsins ákvað ég nú samt að henda inn bloggi! :) Já gleðjist og njótið :)

Já elskurnar mínar í dag eru nákvæmlega 15 ár síðan ég lét síðast sprikling inn fyrir mínar varir!! Merkilegt nokk!!
Skemmtileg saga að segja frá því!! Það var á þessum degi fyrir akkúrat 15 árum sem ég fór í amli til þáverandi vinkonu minnar og gott ef ekki bekkjarsystur (seinna meir) í fimmáraamli og hún bauð uppá svona glansandi gult Jell-o spriklingavibba og ég að sjálfsögðu fékk mér smakk af þessu dýrlega fína nýja gúmmelaðinu og fanst það bara alls ekkert svo gott... fór svo heim eftir partýstandið og það var rigning (kemur á óvart hérna í borginni haaa??) og upp kom glansandi gúmmelaðið og hélt bara áfram að sprikla og hló beint í andlitið á mér!!
Upp frá þessum degi get ég varla hugsað mér þesskonar hrotta án þess að fá hroll og hrissting!

>Já börnin góð af þessu getiði lært að það er ekkert endilega allt vingjarnlegt sem glansar, þótt það segist ekki vera óvenjulegt og vilji bara sýna þér playstationtölvuna sína og skutla þér svo aftur á barinn - þá er ekki allt sem sýnist! Svo muniðið bara að setja ofninn á 180° og þá verða allir hamingjusamir!!

Veriðið hress, bless!


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 17:49:27 / kurl

Draugadans - Gagnrýni!

    Hey tjekkið á gagnrýninni á www.leikhus.is !!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 16:09:34 / kurl

Myndir

"ég á gamalr myndir...." Ég á reyndar nýjar myndir, alveg glænýjar! :) Var að henda þeim inn alveg hreint glóðvolgum úr vélinni!

www.public.fotki.com/hinsvegins

Tjekkið á þeim!

Afmæli hjá Huldu í kvöld á Barnum! Grímuþema.... beila á þemanu en mæti galvösk í partýið! ;) Hevý stuð!

Já góðir hálsar ég er loksins komin með netið hérna heima! :) Búin að afgreiða allt sem ég man eftir á netinu núna á c.a. klukkutíma; vera á msn, downloada lögum, spila bubbles, hlaða inn myndum á netið, blogga, fara í heimabankann minn, skoða fullt af bloggum, fara á minnsirkusinn minn... bara bísna gott!

Vávavíva!

Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 11:41:17 / kurl

Meyjan :)

Afhverju í ósköpunum er meyjan alltaf síðust á listanum yfir stjörnumerkin?? Ekki eins og ágúst sé síðastur í árinu!! Uss þvílíkt og slíkt!!


Meyjan, 30.01.2007

Þér er ráðlagt að hætta að eltast við öll tækifæri því þau banka sífellt upp á hjá fólki eins og þér miðað við stjörnu meyju. Ef eitthvað sem þú upplifir höfðar til þín skaltu ekki hika við að vinna að því en þú ættir að sama skapi ekki að örvænta þó draumarnir rætist ekki nákvæmlega í þeirri röð sem þú hefur gert þér í hugarlund.

Búnir að vera frekar tæpir dagar hjá mér undanfarið.... sýna, sýna, sýna og gera ekki neitt þar á milli!! Skemmtilegt! En það þýðir víst ekkert að detta niður í sjálfsvorkun og þunglyndi, bara að drífa sig áfram - finna e-ð nýtt og spennandi til að hafa áhuga á! :)
Er rétt í þessu að fara að tilkynna útskrift, trúi bara hreinlega ekki að þetta sé að verða búið!! Bara strax, en ég er bara lítil stelpa ennþá... er ég að verða 20 ára?? Ha? Svaf ég svona lengi?? Ussss... botna ekkert í þessu...
Er að verða obbolítið stressuð fyrir framtíðina... Hvað á maður eiginlega að gera eftir MH? Leiklistin var alltaf leiðin en ég er ekki viss um það ennþá! Langar soltið í fjölmiðlana, sjónvarpið! Sjáiði mig fyrir ykkur að lesa fréttirnar á RÚV? Heheh eða í kastljósinu?? Djöfull væri það magnað! :)

Jæja best að gera e-ð að viti!

>Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 14:20:01 / kurl

Em æ underligh?

 Komst að því að ég hlýt að vera ekki alveg eins og allir hinir þegar ég var í sakleysi mínu að skoða www.mbl.is og sá þarna mjög skemmtilega frétt um óþægilegustu hljóð í heimi og það eina sem mér finnst óþægilegt, meira svona óþolandi kannski er nr. 3 barnsgrátur mörg börn í einu. Það sem kemur mér á óvart er hinsvegar að mitt ógeðslegasta hljóð í allri veröldinni er snýtihlljóð er ekki á listanum, það er nottla bara hreinasti viðbjóður! Ég kúgast bara við að heyra það núna í hausnum á mér á meðan ég hugsa um þetta! Bjjjjaakk....
Er þitt ógeðslegasta hljóð þarna á listanum??

Tíu óþægilegustu hljóðin að mati þátttakenda í rannsókninni voru eftirfarandi:

 

  1. Karlmaður kastar upp
  2. Ískur í hljóðnema
  3. Barnagrátur (mörg börn)
  4. Marr í togvindu
  5. Marr í vegasalti
  6. Spilað falskt á fiðlu
  7. Hljóð í „fretblöðru"
  8. Barnsgrátur (eitt barn)
  9. Rifrildi
  10. Suð í háspennulínum

Er í skólanum að vinna hörkuspennandi skýrslu í sálfræði um skammtímaminni samnemenda minna í MH. Ekkert spennandi sem kom út úr því.... allir eðlilegir :( Ég kom svo sjálfri mér skemmtilega á óvart, ég hélt að ég væri komin svo langt á eftir í þessum áfanga og gerði þessvegna uppkast af skýrslunni heima og er núna bara komin laaaangt á undan öllum hinum í áfanganum! Hefur það gerst áður á menntaskólagöngu minni ...uuuu NEIBB!! :)

Rosalega sátt líka við að ég sagði mig úr stærðfræðiáfanganum mínum, rúmfræði, hræðilegur áfangi... brast næstum í grát bara við að sjá námsáætlunina!!

Í gær átti ég líka semí amli 19 ára og 5 mánaða, já góðir hálsar það er rétt rúmt hálft ár í að ég verði hvorki meira né minna en 20 ára :) Ekkert nema jákvætt við það :D

Draugadans í kvöld... þið sem hafið ekki náð ykkur í miða, það er enn tækifæri á því!

Næstu sýningar:

25. janúar
26. janúar
27. janúar
28. janúar
3. feb
4. feb

Meiri upplýsingar á www.lfmh.tk og www.mh.is  

Smá svona flottir kjólar af Golden!

Abigail Breslin at the 64th annual Golden Globe Awards.Steve Granitz/WireImage.com - Tuesday, January, 16, 2007, 1:16 AMNicollette Sheridan at the 64th annual Golden Globe Awards.Steve Granitz/WireImage.com - Tuesday, January, 16, 2007, 12:16 AM

Hún var nottla bara sætust! En þessi gella er eins og kellingin sem er sett oná brúðartertur!

>Mér fannst líka allir úr Heroes standa uppúr fyrir glæsileika, rosalega er fallegt crewið í þessum þáttum!!

Rachel Weisz at the 64th annual Golden Globe Awards.NBC/Paul Drinkwater - Tuesday, January, 16, 2007, 9:16 AM
Kannast við þennan, ef hann væri ögn styttri! Geggjaður!! :D

Ciao tutti!


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 12:16:09 / kurl

Annáll

Ákvað að gera svona annál frá því viðburðaríka ári 2006!

Janúar
Afi farinn á Hrafnistu, við Hrannar í Stekkjarkinninni
MH byrjar aftur með tilheyrandi slugsi

Febrúar
Dulgeg að kíkja á djammið
Man nú ekkert eftir þessum mánuði - kannski vegna þessa hér að ofan :$

Mars
Dimmision rætt og ég ákveð að vera með túttunum
Einræðuleiklistaráfanginn byrjaði að ræða við Hugarafl um sýningar á stórfeinglega verkinu Mismunatengsl.

Apríl
Voru páskarnir ekki þá? (spurning um að draga úr djamminu)
Fór allavega norður um páskana, minnir að það hafi verið stuð :P
Reyndi að leggja mig fram við námið til að reyna að ná allavega flestu...
Dimmision - Call on me, þarf að segja meira?!

Maí
Próf - náði ekki öllu....
Norður að vinna á bauknum
Orðin þreytt og vil frelsi

Júní
Vinna vinna vinna
Ofsa kósý tími á víkinni góðu, alltaf jafn fallegt þar í júní
Dreif mig í heimsókn til Ragnheiðar í Köben

Júlí
Enn í heimsókn hjá Rönku
Vinna vinna vinna
Losaði mig við kallinn, laus og liðug!

Ágúst
19. afmælisdagurinn - munaði engu
Mærudagar, hef upllifað þá skemmtilegri - var að vinna 8|
Tónlistarveislan - tær snilld
Fór aftur í borgina
Jóhanna flutti inn til mín :)

September
Enn á ný MH
Ofsalega tómlegur en Brynja, Kristín, Gísli og Indirði björguðu þessu!
Byrja að kenna leikhússport
Íris fer til Ítalíu og Jana, Habba og Eyrún fara langt langt í burtu!

Október
Perlan mín fer til himna og tekur Habbakúk með sér.
Kynntist yndislegum strák
Flutti úr Stekkjarkinninni og á Breiðvanginn

Nóvember
Innfluttnigspartýið alræmda
Mörg skemmtileg djömm með mis skemmtilegu fólki hehe neeeiii spaug!
Reyndi að þrauka í MH
Dimmision nr.2 - ofsa flott drag sjóv

Desember
Próf - Náði öllu!! :)
Æfingar byrjuðu á Draugadansi
Fór í óhugnalegustu flugferð allra tíma
Jól - alltaf klassísk, pínu erfið í þetta skiptið! Biðst innilegrar afsökunnar þeim sem ég lét það bitna á! :|
Áramót

>Þetta var upp til hópa gott ár og ég er sátt!
Takk þið sem hafið átt þátt í að gera það svona gott! :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 16:03:18 / kurl

Draugadans...

Núna er allt á fullu í æfingaferlinu hjá okkur í LFMH !   Við erum að æfa verk sem heitir Draugadans og er byggt á íslenskum draugasögum! Ógó spennó!! :)

Sýningarnar byrja 20 janúar og eru til 3 feb!

Endilega allir að kíkja!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11